Undirbúningur

Kennarar beggja skólanna í skólahverfinu unnu saman að undirbúningi, m.a. með gönguferð og samveru að ógleymdu útikennslunámskeiði vegna þróunarverkefnisins, Lesið í skóginn með skólum. Þar stjórnaði Ólafur Oddsson, en auk hans leiðbeindu þeir Friðrik Aspelund, Birgir Hauksson og Sigurður Freyr.
Myndirnar sýna brot af skógarnámskeiði kennaranna og fyrstu dögum skólans.